
Vitringarnir 3 koma til byggða í lok nóvember og færa landsmönnum öllum, til sjávar og sveita, fruntalega jólaskemmtun að vanda. Vinirnir og gullbakarnir Eyþór Ingi, Friðrik Ómar og Jógvan Hansen stíga á stokk í nýrri og sprenghlægilegri sýningu sem er uppfull af gríni, grúvi og gæsahúði! (Afsakið. Jógvan getur ekki fallbeygt orðið Gæsahúð rétt.) Sem fyrr munu óvæntir gestir stíga á svið en tónlistarstjórinn Ingvar Alfreðsson mun stjórna hljómsveit Vitringanna af sinni vestfirsku snilld. Líkt og áður er sýningin ekki við hæfi miðaldra kvenna. Skráðu þig á póstlista Vitringanna til að tryggja þér aðgengi að forsölunni sem verður 28. ágúst kl. 11:00 á vitringarnir3.is Almenn miðasala hefst 1.