
KlassisktFri entré
Vetrarsólstöðutónleikar | Fjölskyldudagskrá Hörpu
Vetrarsólstöðutónleikar Staður: Fimmund í Hörpu Dagsetning: Mánudagur 21. desember Tími: Kl. 11:00 Aldur: Allur aldur Aðgangur: Ókeypis og ekki þarf að sækja miða Mánudagurinn 21. desember er stysti dagur ársins. Í Reykjavík kemur sólin upp um kl. 11:21 og dagsbirtan varir aðeins í rétt rúmar fjórar klukkustundir. Við ætlum að njóta þess að fylgjast með sólinni koma upp yfir borginni og hlusta á fallega tónlist leikna á hörpu og fiðlu af Katie Buckley og Sigrúnu Harðardóttur. Gestir geta komið sér vel fyrir á stólum, mottum eða púðum – eða jafnvel lagst á gólfið, lokað augunum og hlustað. Tónleikarnir eru hugsaðir sem róleg stund í skammdeginu, þar sem fjölskyldur geta staldrað við, hlustað