Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Velsældarþing 15. og 16. apríl 2027
Klassiskt

Velsældarþing 15. og 16. apríl 2027

Árlegt Velsældarþing í Reykjavík er mikilvægur vettvangur samræðna og samvinnu meðal stjórnmálamanna, leiðtoga fyrirtækja, fræðimanna og sérfræðinga á heimsvísu þar sem leitast er við að forgangsraða í þágu velsældar og lífsgæða almennings á breiðum grunni. Velsældarþingið leggur áherslu á að finna nýjar leiðir sem frábrugðnar hinni hefðbundu nálgun út frá eingöngu efnahagslegum mælingum. Þess í stað eru velsæld og lífsgæði metin út frá fjölmörgum félagslegum og umhverfislegum þáttum jafnt sem efnahagslegum.

Þema þingsins 2027, „Saman fyrir velsæld – máttur þess að tengja saman fólk, stefnur og náttúru“(enska Together for Wellbeing – The Power of Connecting People, Policy and Planet) undirstrikar mikilvægi samstarfs við að byggja upp hagkerfi sem setur velferð fólks og jarðarinnar í forgang. Fimmta Velsældarþingið leggur áherslu á innihaldsríka umræðu, miðlun þekkingar og reynslu og samstilltar aðgerðir. Jafnframt byggir þemað á fyrri umræðum um að endurskilgreina framfarir og setja velsæld í forgrunn þegar við tökum ákvarðanir sem móta samfélög okkar.

Velsældarþingið verður haldið í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi Reykjavíkur, og er skipulagt af embætti landlæknis með styrk frá Evrópusambandinu. Fyrsta Velsældarþingið í Reykjavík var haldið árið 2023. Nánari upplýsingar, þar á meðal upptökur frá fyrri þingum og upplýsingar um fyrirlesara, má finna á heimasíðu þingsins: www.wellbeingeconomyforum.is

Se på Harpas webbplats →

Datum

Torsdag 15 Apr

Tid

08:00

Venue

Harpa

Pris

14.900 - 19.900 kr

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík