
María Sól Ingólfsdóttir, sópransöngkona, kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 26. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu. Tónleikarnir fara fram í Hörpuhorni, annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. --- María Sól Ingólfsdóttir lauk nýverið meistaraprófi í söng frá Hochschule für Musik Saar en áður hafði hún lokið bakkalárgráðu í söng frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og framhaldsstigsprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2016. Hún hefur einnig seinustu ár verið nemandi Haus of Shmizzay í New York. María Sól hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum, tónlistarhátíðum og í óperuuppfærslum á Íslandi. Hún hlaut Gr