
Gunnlaugur Bjarnason - kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 5. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu. Tónleikarnir fara fram í Hörpuhorni, á annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. -- Selfyssingurinn Gunnlaugur Bjarnason hóf söngferil sinn í bílskúrsböndum en flutti sig snemma yfir í klassískan söng. Árið 2020 lauk hann framhaldsprófi í klassískum söng frá Menntaskóla í tónlist og þremur árum síðar lauk hann meistaranámi í sama fagi frá Konunglega tónlistarháskólanum í Den Haag árið 2023. Gunnlaugur hefur á síðustu árum stimplað sig rækilega inn í íslensku söngsenuna og hefur tekið þátt í fjölmörgum óperuuppfæ