
Asalaus (Ása Önnu Ólafsdóttir) flytur eigin tónlist í tónleikaröðinni Velkomin heim, sunnudaginn 19. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu. Tónleikarnir fara fram í Hörpuhorni, annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. - Asalaus (Ása Önnu Ólafsdóttir, f. 2000) er hljóð- og tónlistarkona og tónskáld frá Reykjavík. Í verkum sínum vinnur hún með samband efnislegra hluta og hljóðs. Oft notast hún við segulmagnað efni eins og segulband og koparspólur, en efniviður hvers og eins verks hefur áhrif á gerð og útkomu þess. Sem tónskáld og tónlistarkona notar hún grafíska nótnaskrift, óhefðbundna spilatækni, og rafhljóð í verkum sínum og bl