
Valdimar Guðmundsson lítur yfir farinn veg og tekur sína stærstu slagara í bland við önnur uppáhaldslög. Með honum til halds og trausts verður hans helsta samverkafólk í gegnum tíðina: Hljómsveitin Valdimar, LÓN, Sigríður Thorlacius og Ómar Guðjóns ásamt hljómsveit og blásurum. Á tónleikunum gefst áheyrendum færi á að heyra allar helstu perlur söngvarans, bæði lög með hljómsveitinni Valdimar og lög frá sólóferlinum. Stórhljómsveit undir stjórn Ómars Guðjónssonar mun flytja efni frá sólóferlinum í bland við önnur uppáhaldslög Valdimars. Hljómsveitin Valdimar mætir á svæðið og tekur sína stærstu slagara. Valdimar mun einnig koma fram með hljómsveitinni LÓN og flytja brot af því besta sem sveit