
Þrjár raddir fléttast saman á opnunartónleikum Seiglu og kanna goðsagnir náttúrunnar. Söngkonurnar? Harpa Ósk Björnsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Sophie Kidwell, ásamt Elísabet Waage á hörpu og Matthildi Önnu Gísladóttur á píanó, leiða saman óperu, sönglög og þjóðlagaarf frá ýmsum löndum Evrópu. Tónlistin ferðast á milli áa, skóga og yfirnáttúrulegra vera og rekur sögur sem hafa streymt um evrópska menningu um aldir. Efnisskráin hefst í ríki vatnsins, þar sem goðsagnir og náttúra mætast. Rínarmeyjar Richards Wagners úr Das Rheingold gæta geislandi fjársjóðs undir yfirborði árinnar. Í Rusölku eftir Antonín Dvořák kalla vatnadísir úr djúpinu, en hinn frægi Söngur til tunglsins tjáir