
KlassisktFri entré
VÆB í Hörpu | Fjölskyldudagskrá Hörpu
VÆB í Hörpu Staður: Hörpuhorn í Hörpu Dagsetning: Laugardagur 17. október Tími: Kl. 14:00 Aldur: Allur aldur Aðgangur: Ókeypis og ekki þarf að sækja miða VÆB-bræður mæta í Hörpuhorn með fjölskylduvæna tónleika þar sem stuð og stemning verða í fyrirrúmi! Bræðurnir Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir skipa dúettinn VÆB, sem hefur vakið mikla athygli fyrir kraftmikla tónlist, húmor og líflega sviðsframkomu. Árið 2025 kepptu þeir fyrir Íslands hönd í Eurovision með laginu RÓA. Á tónleikunum í Hörpu verður boðið upp á sannkallað VÆB fyrir alla fjölskylduna – hressandi tónlist, góða stemningu og nóg af stuði.