
Teater
Útkall - Leiksýning: Flugslysið á Sri Lanka
Einn vinsælasti bókaflokkur Íslands verður að leiksýningu. Einn myrkasti kafli í íslenskri flugsögu. Þann 15. nóvember 1978 brotlenti flugvél Flugleiða, Leifur Eiríksson, við flugvöllinn í Kólombó á Sri Lanka. Af þeim 262 manns sem voru um borð komust einungis 79 lífs af, sem gerði brotlendinguna að fjórða mesta flugslysi sögunnar á þeim tíma. Af þeim sem komust af voru fimm Íslendingar. Aðdraganda slyssins, björgunaraðgerðunum og eftirmálunum hafa verið gerð skil í bók Óttars Sveinssonar, Útkall - Leifur Eiríksson brotlendir. Bókin byggir á viðtölum við eftirlifendur slyssins, aðstandendur og aðra flugáhafnarstarfsmenn sem voru á flugvellinum þegar brotlendingin átti sér stað. Nú verðu