
Tónlistarkonan vinsæla Una Torfa verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 1. október, 2026! Fyrir nokkrum árum sló Una rækilega í gegn með frábærum og grípandi popplögum sínum og íslenska þjóðin var meira en til í þessa músík. Það er óhætt að líkja ferlinum hingað til sem sigurför. Hún skrifaði söngleikinn Storm ásamt Unni Ösp Stefánsdóttur auk þess að semja tónlistina fyrir verkið. Auk tónlistar Unu er aldrei að vita nema hægt verði að véla hana í eitthvað fleira skemmtilegt. Hvur veit? // Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafó