
Teater
Tvíhöfði - 30 ára brúðkaupsafmæli
Þeir Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr hafa glatt margar kynslóðir íslendinga á sínum langa samstarfsferli. Þeir færðu okkur Fóstbræður og ýmislegt annað hágæða sjónvarpsefni. En samstarf þeirra í útvarpi er ekki síður einstakt. Útvarpsþátturinn Tvíhöfði er ekki bara þáttur heldur upplifun sem á engan sinn líka hér á landi eða í nágrannaríkjum okkar. Mánuðum saman héldu þeir Nígeríska svikahrappinum Mustapha á snakki og öll þjóðin fylgdist með þegar Woody Allen, Dr. Frankenstein og Harrison Ford ræddu við Mustapha sem var á leið til Íslands til að taka við Harrison-Allen fiskvinnslunni. Enginn sem hlýddi á þá félaga lýsa úrslitaleik í HM mun gleyma þeirri upplifun. Eða þá framhaldsleikritunu