Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
TÖFRI TÖFRI
Teater

TÖFRI TÖFRI

Hinn eini sanni Lalli töframaður er mættur aftur í Tjarnarbíó með glænýja sýningu! Í gegnum árin hafa sýningar Lalla í Tjarnarbíó heldur betur slegið í gegn á meðal áhorfenda og fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir frumlega og skemmtilega nálgun á leikhúsið.,,Töfri Töfri” er fjölskyldu og barnasýning ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa, enda er sýningin stútfull af töfrum, gríni og gleði fyrir ÖLL.!!! Lalli var 5 ára gamall þegar hann fékk fyrst áhuga á töfrum. Í þessari sýningu býður hann áhorfendum í skemmtilegt ferðalag í gegnum líf sitt og alla þá töfra sem hafa á vegi hans verið.,,Töfri Töfri” fjallar um Lalla (töframann) sem fékk áhuga á töfrum aðeins 5 ára gamall. Á sýningunni munu leikhúsgestir fá að kynnast því hvernig Lalli nýtti ofurkraftana sína, sem sum flokka sem námsörðugleika, til þess að brjótast út úr skelinni og láta drauma sína rætast. Vinur Lalla mun einnig koma við sögu en það er enginn annar er áhættuatriða-þvottabjörninn hann RINGÓ! Ef þér finnst gaman að hlæja, láta koma þér á óvart og eiga fallega og skemmtilega stund að þá er sýningin,,Töfri Töfri” með Lalla töframanni fullkomin sýning fyrir þig og þitt fólk. Hlökkum til að sjá ykkur! Leikari: Lárus Blöndal Guðjónsson Höfundar: Jónsi Hannesson, Lárus Blöndal Guðjónsson, Stefán Ingvar Vigfússon Leikstjórn: Jónsi Hannesson, Stefán Ingvar Vigfússon Ljósahönnuður: Ásta Jónína Arnardóttir Búningahönnuður: Elma Bjarney Guðmundsdóttir Sviðshreyfingar: Lea Alexandra Gunnarsdóttir Sviðsmynd: Lárus Blöndal Guðjónsson Leikmunir: Lárus Blöndal Guðjónsson, Guðjón Borgar Hilmarsson Frumsamin tónlist: Karl Olgeirsson Framleiðandi: Glimmer slf Lengd sýningar er 45 mín Sýningin er ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa.

Se på Tjarnarbíós webbplats →

Datum

Söndag 17 Jan

Tid

15:00

Pris

3.900 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík