
Teater
TÖFRI TÖFRI
Hinn eini sanni Lalli töframaður er mættur aftur í Tjarnarbíó með glænýja sýningu! Í gegnum árin hafa sýningar Lalla í Tjarnarbíó heldur betur slegið í gegn á meðal áhorfenda og fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir frumlega og skemmtilega nálgun á leikhúsið. ,,Töfri Töfri” er fjölskyldu og barnasýning ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa, enda er sýningin stútfull af töfrum, gríni og gleði fyrir ÖLL.!!! Lalli var 5 ára gamall þegar hann fékk fyrst áhuga á töfrum. Í þessari sýningu býður hann áhorfendum í skemmtilegt ferðalag í gegnum líf sitt og alla þá töfra sem hafa á vegi hans verið. ,,Töfri Töfri” fjallar um Lalla (töframann) sem fékk áhuga á töfrum aðe