
Klassiskt
Tileinkun
Hér verður boðið upp á dreymandi og djúpa efnisskrá sem er samansett af tónlist sem er öll skrifuð til heiðurs þeirra listamanna sem veittu tónskáldunum innblástur. Verkin hafa líka öll vissa tengingu við Frakkland, en Grisey, Boulez og Ravel voru franskir, Stravinsky bjó lengi í Frakklandi og hlaut síðar franskan ríkisborgararétt. Pólverjinn Lutoslawski komst ekki til náms til Parísar eins og hann dreymdi um vegna seinni heimsstyrjaldarinnar, en var fyrir miklum áhrifum af frönskum samtímamönnum sínum og starfaði með fyrrnefndum Boulez. Allir eiga þeir líka sameiginlegt að þeir leggja sérstaka áherslu á liti og áferð í tónlist sinni sem leiða skynfæri hlustandans í ferðalag. Elja samanstend