Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Til ljóssins og lífsins
Klassiskt

Til ljóssins og lífsins

Til ljóssins og lífsins Karlakórinn Fóstbræður – Langholtskirkja, 14. nóvember 2026, kl. 14 og 17 Líkt og undanfarin ár bjóða Fóstbræður til einstakrar tónlistar- og kyrrðarstundar í anda Allra sálna messu, þar sem ljúfir tónar leiða hugann að fegurð lífsins, kærleikanum og minningum um ástvini, bæði lífs og liðinna. Tónleikarnir í ár eru tileinkaðir minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, en fráfall hennar snerti Fóstbræður djúpt. Faðir hennar, Birgir Karl Óskarsson, er kær söngbróðir og verður meðal einsöngvara á tónleikunum. Sérstakir gestir eru félagar í hljómsveitinni Góss, sem munu ásamt kórnum skapa einstaka tónlistarupplifun. Efnisskráin spannar innlenda og erlenda tónlist, veraldlega jafnt sem trúarlega og er óður til lífsins, ljóssins og kærleikans. Tónleikarnir eru stund til minningar og þakklætis, en jafnframt hvatning til aukins kærleika, bræðralags og gæsku, eins og segir í ljóðlínunum: „Hver vinur annan örmum vefur og unga blómið krónu fær, þá dansar allt sem hjartað hefur er hörpu sína vorið slær.“Stjórnandi kórsins er Árni Harðarson og meðleikari Tómas Guðni Eggertsson, organisti og píanisti. Miðaverð er 7.000 kr. og rennur allur ágóði tónleikanna í Minningarsjóð Bryndísar Klöru.

Se på Langholtskirkjas webbplats →

Datum

Lördag 14 Nov

Tid

14:00

Pris

7.000 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík