
Klassiskt
Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens
Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra. Tónleikarnir í ár verða hefðbundnir. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985. Þótt staðsetning tónleikanna hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn, perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.