Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Þegar Trölli stal jólunum! Söngleikur
Teater

Þegar Trölli stal jólunum! Söngleikur

Þegar Trölli stal jólunum sem frumsýndur verður á Stóra sviði Borgarleikhússins í nóvember 2026. Þegar Trölli stal jólunum er frábær söngleikur fyrir alla fjölskylduna og hentar vel börnum frá 4-5 ára aldri. Sýningin verður 2 tímar með hléi og er sýnd á Stóra sviðinu. Jólahátíðin er tími samveru, söngs… og prakkaraskapar! Í fyrsta sinn kemur hinn ástsæli söngleikur Þegar Trölli stal jólunum! til Evrópu og verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. Sýningin er byggð á klassískri sögu eftir Dr. Seuss þar sem jólaþorpið Hvervík lifnar við með grípandi tónlist og litríkum persónum og aðalpersónu okkar Trölla - fúlum, grænum prakkara sem ætlar sér að eyðileggja jólin, áður en allt tekur óvænta stefnu. Stórskemmtileg fjölskyldusýning með hinum óviðjafnanlega Björgvini Franz Gíslasyni í hlutverki Trölla. Hvort sem þú þekkir Trölla eða ert að kynnast honum í fyrsta sinn, er þetta einstakt tækifæri til að upplifa þennan heimsklassa söngleik og komast um leið í jólaskap. Komdu og láttu hjartað þitt stækka aðeins fyrir jólin! Handrit og söngtextar: Timothy Mason Tónlist: Mel Marvin Viðbótartónlist og söngtextar: Albert Hague og Dr. Seuss Þýðing: Salka Guðmundsdóttir Leikstjóri: Valur Freyr Einarsson Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson Búningar: María Th. Ólafsdóttir Leikarar: Björgvin Franz Gíslason Björn Stefánsson Esther Talía Casey Halldór Gylfason Hilmir Jensson Pétur Ernir Svavarsson Sigrún Edda Björnsdóttir Þórunn Arna Kristjánsdóttir Dansarar: Birna Karlsdóttir Björn Dagur Bjarnason Gabriel Marling Rideout Karen Sif Kamgan Karitas Lotta Tulinius Rúnar Bjarnason Barnaleikhópur: Birkir Frosti Kjartansson Eva Lovísa Heimisdóttir Eva Sigríður Andradóttir Helga Matthildur Diallo Hlynur Axel Bjarkason Iðunn Eldey Stefánsdóttir Kári Páll Thorlacius Nína Sólrún Tamimi Rafney Birna Guðmundsdóttir Sindri Gunnarsson Sól Óskarsson Herrera Theodór Elí Kristjánsson

Se på Borgarleikhúsiðs webbplats →

Datum

Söndag 27 Dec

Tid

13:00

Pris

7.900–10.400 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík