
Klassiskt
Þagnarómur - Sígildir sunnudagar
Efnisskrá tónleikanna Þagnarómur hverfist um hinar ýmsu birtingarmyndir þagnarinnar í tungumáli, menningu og sögu. Þar mun KIMI ensemble frumflytja tvö ný verk eftir Guðmund Stein Gunnarsson og Ayu Yoshida, þar sem tónskáldin skoða hvernig þagnarhugtakið birtist í hefðbundinni japanskri ljóðlist sem og í íslensku máli. Einnig mun KIMI flytja eldri verk samin fyrir hópinn; má þar nefna verk eftir ísraelska tónskáldið Udi Perlman sem endurspeglar þöggun palestínskra radda, ásamt verki Kolbeins Bjarnasonar sem samið er við ljóð hins palestínska Refaats Alareers og fjallar um von um betri framtíð. Þá flytja þau verk eftir danska tónskáldið Jeppe Ernst, sem einkennist af spennuþrunginni þögn. Þes