
Pop
Teitur Magnússon : Askur – útgáfutónleikar
Teitur Magnússon : Askur – útgáfutónleikar Teitur Magnússon sendir frá sér nýja vínylplötu um þessar mundir er nefnist Askur og fagnar því með útgáfutónleikum í Tónabíó 3. október. Ekki missa af þessari einstöku uppskeruhátið - komdu fagnandi! Öllu verður til tjaldað og breiðskífan flutt í heild sinni í fyrsta sinn auk ýmissa eldri slagara ásamt einvalaliði hljóðfæraleikara: Mýtlunum. Þetta er fjórða sólóplata Teits síðan reggísveitin rómaða Ojba Rasta lagðist í dvala. Askur kemur í kjölfar: 27, Orna og 33 - en allar þrjár hafa hlotið: lof, prís og áheyrn fagurkera þessa lands. Á Aski heldur tónheimur Teits áfram að þróast í lífræna átt: Folk, Popp, Rokk og Tropicalia í bland við íslenska te