
Slegið verður upp tangódansleik í Hörpu á Menningarnótt þar sem splunkunýir og þaulvanir dansarar fá að sameinast á dansgólfinu. Á milli 16:30 og 17:00 bjóða tangódansararnir Bryndís Halldórsdóttir og Hany Hadya upp á kennslu í argentínskum tangó fyrir nýja dansara. Frá 17 - 18 verður svo boðið upp á Milongu við undirleik argentínskrar tangótónlistar. Verið öll hjartanlega velkomin. Komið með eða án dansfélaga og í dansvænum skóm. Tangóinn er ættaður frá Buenos Aires í Argentínu en í honum sameinast dans, tónlist og ljóð. Tangó er spuni; hver dans er einstakur og verður til um leið og parið dansar saman. Spuninn byggir á grunnskrefum en býr jafnframt yfir ótal mörgum þáttum sem geta skapað a