
Ásgeir stígur á svið í Eldborg þann 29. ágúst og býður upp á stórtónleika í tilefni af útgáfu nýjustu plötu sinnar, Julia. Ásgeir ætlar að fara yfir ferilinn sinn en Ásgeir hefur gefið út yfir 100 lög á íslensku og ensku á síðustu 14 árum. Ásamt því að syngja sín stærstu lög mun hann einnig flytja plötuna Julia og kynna ykkur fyrir nýju efni á væntanlegri plötu á íslensku. Ekki missa af þessari einstöku kvöldstund þar sem fortíð, nútíð og framtíð koma saman! Julia, sem kom út 14. febrúar 2026, er einlægasta verk Ásgeirs til þessa en í fyrsta sinn samdi hann textana alfarið sjálfur. Útkoman er eitt hans persónulegasta verk með skugga titil persónunnar sem leiðarstef. Um Ásgeir Það eru að verð