
Teater
Stella í orlofi fertug! | Q&A - Kaffihlaðborð - Kvikmyndasýning
Komdu með og fögnum saman fertugsafmæli einnar ástsælustu persónu íslensku kvikmyndasögunnar! Afmælisveisla með öllu tilheyrandi í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 22. Nóvember frá kl. 14:00 - 17:00. Gleðin hefst á samverustund með stjörnum og leikstjóra kvikmyndarinnar þar sem Edda Björgvins, Þórhildur Þorleifsdóttir og Sólveig Arnarsdóttir sitja fyrir svörum. Þær munu deila sögum og reynslu sinni af gerð myndarinnar og sjálf stórsöngkonan Diddú mætir og flytur titillagið. Veitingastaðurinn Krónikan stendur svo fyrir alvöru kaffihlaðborði í anda Stellu með öllu tilheyrandi fyrir sýningu myndarinnar. Á borðum verða glæsilegar brauðtertur með nóg af mæjonesu, rjómaskreyttar hnallþórur á gamla