
Spjall með flytjendum - Seigla Að tónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli. Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. Hvort sem þú ert á leið á næstu tónleika kvöldsins eða vilt einfaldlega njóta augnabliksins, er þetta tilvalið tækifæri til að spjalla við listamennina, fá sér drykk og undirbúa sig fyrir næstu tónleika. Á barnum í Hnossi verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar. – Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Se