
Söngleikurinn Kabarett
Hér getur þú öllu gleymt Er lífið eintóm vonbrigði? – Ekkert mál!
Í Þjóðleikhúskjallaranum býðst þér að gleyma öllum áhyggjum á Kabarett klúbbnum Kit Kat. Tónlistin er falleg, fólkið er fallegt og þér er boðið fallega að njóta gleðinnar með okkur! Söngleikurinn Kabarett er ódauðleg klassík sem fjallar á ögrandi hátt um samfélag á heljarþröm. Verkið býður okkur í tímaferðalag tæplega 100 ár aftur í tímann?inn á stórfjörugan en afar kynlegan skemmtistað í Berlín. Í næturhúminu blómstra ástin, frelsið og listin en samtímis eykst ógn nasismans fyrir utan veggi klúbbsins dag frá degi. Sýningin fæst á djarfan og ærslafullan hátt við lævíst eðli illskunar og viðbrögð okkar við henni.
LASTABÆLIÐ BERLÍN – FRÆGUR SÖNGLEIKUR – NÆSTA KYNSLÓÐ
Leikhús ókunnuga fólksins er nýr hópur ungs listafólks með fjölbreyttan bakgrunn sem hefur ástríðu fyrir söngleikjaforminu og tekst hér á við hinn geysivinsæla söngleik Kabarett með nýstárlegum hætti.
Ekki láta þig vanta á skemmtilegasta klúbb í heimi!
Í samstarfi við Leikhús ókunnuga fólksins. Söngleikurinn Kabarett eftir Joe Masteroff og Fredd Ebb
Tónlist: John Kander Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson Leikstjórn: Bjartur Örn Bachmann Aðstoðarleikstjórn: Arndís María Ólafsdóttir Dramatúrgía: Níels Thibaud Giererd Sviðshreyfingar: Júlía Kolbrún Sigurðardóttir Dans: Sally Cowdin Tónlistarstjórn: Fannar Sigurðsson og Þorsteinn Jónsson Búningar: Hulda Kristín Hauksdóttir Leikgervi: Kristjana Rós Sigurðardóttir Leikmynd og leikmunir: Bryndís Magnúsdóttir og Melanie Ubald. Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson Hljóðhönnun: Þórður Gunnar Þorvaldsson.