Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
SKIES - Píanótónleikar Nikola Pešić
Klassiskt

SKIES - Píanótónleikar Nikola Pešić

Með tjáningarríkum virtúósískum píanóleik, hlýju og útgeislun skapar Nikola Pešić tónleikaupplifun sem hrífur áheyrendur og býr með þeim löngu eftir að síðasti tónninn hljómar. Kvöld þrungið nánd, tilfinningum og andagift.

Serbneski píanóleikarinn og tónskáldið Nikola Pešić, sem búsettur er í Sviss, kemur fram í Hörpu á SKIES tónleikaferð sinni. Þar flytur hann úrval nýklassískra píanóverka af rómaðri plötu sinni SKIES (CD&vínyll), ásamt nýjum og áður óútgefnum verkum.

Tónlist Nicola sameinar klassískan tónlistararf og mínímalískt tónmál með fíngerðum áhrifum úr poppi og djassi. Hún birtist sem röð persónulegra tónlistarsagna sem fjalla um minningar, hverfulleika, von og ljóðræna fegurð hversdagsins.

Persónulegar kynningar Nicola á verkunum, sumar glettnar og aðrar innilegar, veita innsýn í sögurnar á bak við tónlistina og skapa náin tengsl milli listamannsins og áheyrenda.

Tónleikar fyrir alla sem vilja ekki aðeins hlusta á tónlist heldur upplifa hana.

Áætluð lengd: um 70 mínútur, án hlés

Se på Harpas webbplats →

Datum

Torsdag 25 Feb

Tid

19:30

Venue

Harpa

Pris

0 - 7.200 kr

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík