
Seigla er kammertónlistarhátíð í Hörpu sem býður upp á fjölbreytta viðburði þar sem hið hefðbundna tónleikaform er brotið upp. Hátíðin fer fram árlega aðra helgina í ágúst. Í ár tekur dagskrá Seiglu mið af þemanu flétta. Við bjóðum flytjendum og áheyrendum að nálgast þemað frá ólíkum sjónarhornum og velta fyrir sér hvernig þræðir tónlistar, texta, rýmis og mannlegra samskipta geta fléttast saman í skemmtilega heild. Fléttan getur birst á margvíslegan hátt. Hún getur falist í því hvernig samband mismunandi tónverka í efnisskrá fléttast saman í eitt, eða hún getur einnig komið fram í tónlistinni sjálfri, þar sem ólík stef, sögur, minningar eða hugmyndir tvinnast saman og skapa ný tengsl og me