
Teater
Sálmurinn um blómið
Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 2. og 3. okt. Sýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn. Verkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir, oft með kostulegum tilburðum, að fylgja þeirri þroskasögu. Jón Hjartarson, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar „Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og