
Klassiskt
SAGA MUSICA – Sagnatónlist innblásin af Íslendingasögunum
SAGA MUSICA er lagabálkur eftir íslenska tónskáldið og lagahöfundinn Valgeir Guðjónsson, þar sem hvert lag sækir íkveikju í sagnaheim norrænnar goðafræði og Íslendingasagnanna. Efnið er einstakt að því leyti að tónlistin verður sjálf að sögum og opnar þannig fyrir nýja nálgun áheyrenda við bókmenntaarf Íslendinga. Með tónlistinni er leitast við að vekja áhuga og forvitni á sögunum og hvetja til þess að rýna frekar í þær. Valgeir Guðjónsson samdi textana á ensku en þannig gefst bæði íslenskum og erlendum áheyrendum kostur á að kynnast sögunum í nýju samhengi. SAGA MUSICA hefur á undanförnum tólf árum að mestu verið flutt fyrir erlenda gesti, einkum á lokuðum viðburðum, en hluti efnisins he