
Teater
Sæmundur Fróði
Sæmundur fróði er ný ópera eftir Þórunni Guðmundsdóttur og er um frumflutning að ræða. Það er sviðslistahópurinn Animato sem stendur að uppfærslunni. Verkið fjallar um ævi Sæmundar fróða Sigfússonar (1056-1133) prests í Odda, sem var í hópi lærðustu Íslendinga sinnar tíðar. Fjölmargar sögur eru til af Sæmundi, ekki síst viðureign hans við Kölska en það eru þær sem óperan byggist á. Í þjóðsögunum birtist togstreitan milli góðs og ills, kímnin í sögunum kallast á við hættuna á eilífri glötun, og svo bætist við sá áhugaverði vinkill að Kölski getur brugðið sér í allra kvikinda líki. Ævi Sæmundar er því tilvalinn efniviður í óperu, Form verksins byggir á þeirri grunnhugmynd að dauðasyndirnar séu