
Rumours 50 ára
RUMOURS 50 ára Hljómplatan Rumours með Fleetwood Mac kom út í febrúar árið 1977 og fagnar nú glæstum 50 ára tímamótum. Platan vermdi efsta sæti bandaríska Billboard-listans í hvorki meira né minna en 31 viku og var valin plata ársins á Grammy-verðlaununum. Með yfir 40 milljónir seldra eintaka er hún ein allra söluhæsta breiðskífa sögunnar og geymir ódauðleg lög eins og „Dreams“, „Go Your Own Way“, „The Chain“, „Don’t Stop“ og „Songbird“ – auk hins magnþrungna „Silver Springs“, sem rataði upphaflega á B-hlið einnar af smáskífunum en er í dag órjúfanlegur hluti plötunnar. Fáar eldri plötur standa jafnfætis Rumours í dag því platan hefur náð einstakri tengingu við nýjar kynslóðir hlustenda; lö