Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
RAKEL & Halldór Eldjárn – EITTHVAÐ/ANNAÐ in Hannesarholt

RAKEL & Halldór Eldjárn – EITTHVAÐ/ANNAÐ in Hannesarholt

RAKEL & Halldór Eldjárn – EITTHVAÐ / ANNAÐ í Hannesarholti Rakel Sigurðardóttir og Halldór Eldjárn fagna útgáfu plötunnar EITTHVAÐ / ANNAÐ með tónleikum í Hannesarholti þann 14. nóvember. Fyrir nokkrum árum tóku Rakel og Halldór upp á því að semja lög við nokkur af sínum uppáhaldsljóðum eftir skáld úr þeirra nánasta umhverfi. Ljóðin eru eftir Þórarin Eldjárn, Brynju Hjálmsdóttur, Melkorku Ólafsdóttur og Huldu. EITTHVAÐ / ANNAÐ var hljóðrituð í Hljóðrita í Hafnarfirði í mars 2025. Á plötunni leika bassaleikarinn Birgir Steinn Theodorsson og gítarleikarinn Hilmar Jensson, ásamt Rakel sem syngur og Halldóri sem leikur á trommur. Þau koma nú loksins aftur saman í Hannesarholti og flytja plötuna í heild sinni. Það verður notaleg kvöldstund í fallegu umhverfi Hannesarholts og platan verður að sjálfsögðu til sölu á sérstöku útgáfutónleikaverði. Komið með! Það verður gaman og notalegt!

Se på Hannesarholts webbplats →

Datum

Lördag 14 Nov

Tid

20:00

Pris

5.500 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík