
Tónlistarkonan Ragga Gísla verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 26. nóvember, 2026 Tónmenntakennarinn í Melaskóla sló fyrst í gegn með Lummunum og Brimkló áður en hún stofnaði hinar goðsagnakenndu Grýlur – kvennasveitina fornfrægu sem söng um Sísí og Gullúrið. Eftir þátttöku í kvikmyndinni Með allt á hreinu gekk hún til liðs við Stuðmenn og söng þar ódauðleg lög eins og Betri tíð o.fl. Auk þess hefur Ragga gert sólóplötur og tekið þátt í alls kyns verkefnum auk þess að leika á sviði og í bíó. Þetta verður rooooooosalegt kvöld! // Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur J