
Teater
Polar Express
Plié listdansskóli býður ykkur í ævintýralegt ferðalag í Tjarnarbíói sunnudaginn 13. desember. Jólasýningin í ár er innblásin af Polar Express, þar sem töfrar jólanna, vinátta og trúin á hið ómögulega eru í aðalhlutverki. Nemendur skólans glæða ævintýrið lífi og sýna afrakstur haustannarinnar. Við hlökkum til að deila með ykkur hátíðlegri og gleðiríkri stund fyrir alla fjölskylduna. Verið hjartanlega velkomin um borð!