
Píanókvartettinn Negla flytur verk eftir Huga Guðmundsson, Amöndu Röntgen-Meier og W.A. Mozart. Píanókvartettinn Negla hefur starfað saman síðan í janúar 2023 og hefur á þeim tíma vakið athygli fyrir metnaðarfullt tónlistarval og flutning í hæsta gæðaflokki. Kvartettinn skipa Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari, Anna Elísabet Sigurðardóttir víóluleikari, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari og Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari. Þær hafa haft það að leiðarljósi í efnisskrám sínum að kynna áheyrendur fyrir nýjum eða sjaldheyrðum verkum í bland við þekkta gullmola tónlistarsögunnar og þessir tónleikar verða þar engin undantekning. Fluttur verður nýr kvartett, Centuria, sem Hugi