
Klassiskt
Perlumóða - Barokk & Boccherini
Á tónleikunum bjóðum við upp á ferðalag í gegnum fremur dramatíska prógramtónlist barokk og klassíska tímabil tónlistarsögunnar og spannar allt frá djúpri sorg til hressri danstónlistar. Tónleikarnir byrja á Krossfestingarsónötunni fyrir fiðlu og basso continuo en sónatan er úr ónefndu sónötusafni eftir Tékkneska/Austurríska Heinrich I. F. Biber og raunar eru allar sónöturnar ónefndar, fyrir utan myndskreytingar sem komu í stað titils, og er safnið því oft kallað “dularfullu sónöturnar” eða “rósakranssónöturnar”. Sónötur safnsins krefjast allar mismunandi stillinga á fiðlunni, en sem betur fer þarf einungis að breyta stillingunni á einum streng af fjórum fyrir sónötuna sem nefnd var með tei