Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Ormstunga
Teater

Ormstunga

Hvað gerir mann að hetju? Ung skáld takast á í glænýjum og kraftmiklum stórsöngleik þar sem ekkert er gefið eftir

„Ekki er mark að draumum.“

Ormstunga er glænýr og ferskur íslenskur söngleikur byggður á Gunnlaugs sögu Ormstungu, sígildri sögu sem er í senn spennandi, fyndin og hjartnæm. Höfundarnir eru af yngstu kynslóð leikhúslistafólks, og ná með glæsilegum hætti að vinna úr menningararfi okkar í nútímalegu og heillandi formi. Fjölmargir leikarar Þjóðleikhússins koma fram í þessari æsispennandi sýningu sem margt af okkar færasta leikhúslistafólki tekur þátt í að skapa. Ormstunga er söngleikur fyrir unga sem aldna, með kraftmikilli og fjölbreyttri tónlist.

Gunnlaugur Illugason, Hrafn Önundarsson og Helga hin fagra Þorsteinsdóttir mynda einn frægasta ástarþríhyrning fornbókmenntanna. Of lengi hafa örlögin hrjáð þau en nú fyrir framan áhorfendur fá þau loksins að gera upp sín mál!

Saga um drauma, ástir og ill örlög. Frískleg og kraftmikil endursköpun á íslenskum menningararfi. Orka og ferskleiki söngleikjaformsins mæta átakaþrungnum heimi Íslendingasagnanna.

ÁST OG HATUR - FRÆGÐ – TÓNLISTARBOMBA - ÍSLENDINGAR Í ÚTRÁS

Leikarar: Almar Blær Sigurjónsson, Birta Sólveig Söring Þórisdóttir, Eygló Hilmarsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Jakob van Oosterhout, Kjartan Darri Kristjánsson, Kristinn Óli Haraldsson, Nick Candy, Oddur Júlíusson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Rán Ragnarsdóttir, Selma Rán Lima, Sigurbjartur Sturla Atlason, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Örn Árnason

eftir Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson Handrit og söngtextar: Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson Tónlist: Hafsteinn Níelsson Meðhöfundur tónlistar og tónlistarstjórn: Jóhannes Damian R. Patreksson

Leikstjórn: Gísli Örn Garðarsson Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Búningar: María Th. Ólafsdóttir Lýsing: Garðar Borgþórsson Hljóðmynd: Þóroddur Ingvarsson og Brett Smith

Se på Þjóðleikhúsiðs webbplats →

Datum

Söndag 22 Nov

Tid

20:00

Pris

0–12.900 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík