
Teater
Ormstunga
Hvað gerir mann að hetju? Ung skáld takast á í glænýjum og kraftmiklum stórsöngleik þar sem ekkert er gefið eftir „Ekki er mark að draumum.“ Ormstunga er glænýr og ferskur íslenskur söngleikur byggður á Gunnlaugs sögu Ormstungu, sígildri sögu sem er í senn spennandi, fyndin og hjartnæm. Höfundarnir eru af yngstu kynslóð leikhúslistafólks, og ná með glæsilegum hætti að vinna úr menningararfi okkar í nútímalegu og heillandi formi. Fjölmargir leikarar Þjóðleikhússins koma fram í þessari æsispennandi sýningu sem margt af okkar færasta leikhúslistafólki tekur þátt í að skapa. Ormstunga er söngleikur fyrir unga sem aldna, með kraftmikilli og fjölbreyttri tónlist. Gunnlaugur Illugason, Hrafn Önunda