
KlassisktTeater
Óður: Afmælistónleikar
Sviðslistahópurinn Óður fagnar fimm ára starfsafmæli sínu með líflegum afmælistónleikum þar sem áheyrendum er boðið í fjölbreytt og skemmtilegt tónlistarferðalag. Frá stofnun hópsins árið 2021 hefur Óður hleypt nýju lífi í íslenskar sviðslistir með því að brjóta upp formfestu óperunnar. Með nálægð, leikgleði og stórsnjöllum íslenskum þýðingum hefur hópurinn sýnt og sannað að ópera á erindi við alla og heillað jafnt áhorfendur sem gagnrýnendur. Hópurinn hefur vakið verðskuldaða athygli, en Óður hlaut Grímuverðlaunin árið 2023 fyrir starf sitt, var útnefndur Listhópur Reykjavíkur 2024 og hlaut nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin 2026 sem flytjandi ársins. Á þessum afmælistónleikum fagnar Óður