Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Óbæri­leg­ur létt­leiki knatt­spyrn­unn­ar — Litla sviði
Teater

Óbæri­leg­ur létt­leiki knatt­spyrn­unn­ar — Litla sviði

Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar Þorleifur Aron, kallaður Doddi, fráskilinn karlmaður á fimmtugsaldri og Óli Gunnar, yngri bróðir hans hittast til að horfa á alla leiki Manchester United saman í sófanum. Leikir enska liðsins eru fastinn sem gefur lífi þeirra lit en einnig sá tími sem þeir geta eytt saman og fengið frið frá amstri dagsins. Yfir leiknum fá tilfinningar þeirra lausan tauminn og í gegnum leikinn fá þeir útrás auk þess sem óhófleg drykkja þeirra er réttlætanleg. Þennan tiltekna laugardag sem verkið gerist bregður út af vananum er Benedikt Hafberg, hinn nýi kærasti barnsmóður Dodda ásamt söngvaranum Valdimar bætast óvænt við hópinn að horfa á leikinn. Spennan innan sem utan vallar eykst sem því nemur og úr verður óútreiknanleg atburðarás sem spannar 90 mínútur. Því líkt utan vallar sem innan þá getur allt gerst í heimi knattspyrnunnar. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er sýning fyrir alla sem elska og hata fótbolta. Höfundar: Sveinn Ólafur Gunnarsson og Ólafur Ásgeirsson Hugmynd: Albert Halldórsson, Ólafur Ásgeirsson, Viktoría Blöndal Leikstjóri: Viktoría Blöndal Leikmynd og búningar: Sólbjört Vera Ómarsdóttir Tónlist: Valdimar Guðmundsson Lýsing: Ásta Jónína Arnardóttir og Juliette Louste Sviðshreyfingar: Erna Guðrún Fritzdóttir

Leikarar: Albert Halldórsson, Ólafur Ásgeirsson, Starkaður Pétursson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Valdimar Guðmundsson

Se på Borgarleikhúsiðs webbplats →

Datum

Fredag 29 Jan

Tid

20:00

Pris

8.200 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík