Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
OASIS heiðurstónleikar

OASIS heiðurstónleikar

X 97.7 kynnir: 35 ár eru nú liðin frá stofnun bresku hljómsveitarinnar OASIS í Manchester á Englandi. Sveitin sendi frá sér sjö breiðskífur á árunum 1994 til 2008 en lagði upp laupana árið 2009 eftir röð atvika milli forsprakka sveitarinnar, bræðranna Liam og Noel Gallagher. Hljómsveitin kom saman á síðasta ári og hélt í tónleikaferðalag víðsvegar um heiminn og komust færri að en vildu, svo ekki sé minna sagt. Margir Íslendingar sátu uppi með sárt ennið, enda sveitin aldrei heldur spilað á Íslandi yfir ferilinn. Hópur íslenskra tónlistarmanna og aðdáenda sveitarinnar hefur því tekið sig saman og hyggst flytja öll bestu lög sveitarinnar með stælum á Græna Hattinum á Akureyri, Silfurtunglinu í Austurbæ í Reykjavík og í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Verður allt lagt í sölurnar, hækkað vel í og sungið sig hása en þó, í mesta bróðerni þar sem nostalgía tíunda áratugarins flæðir í gegnum ærandi gítara og einstaka kvöldstund sem vottar þessari stórkostlegu sveit virðingarvott og tekur hattinn ofan. Hljómsveitina skipa: Daníel Hjálmtýsson - söngur/slagverk Guðmundur Stefán Þorvaldsson - gítar Hálfdán Árnason - bassi Heiðar Örn Kristjánsson - söngur/gítar Helgi Birgir Sigurðsson - trommur Helgi Rúnar Gunnarsson - gítar Jón Ingimundarson - hljómborð Nú er að finna anorakkinn, Adidas skóna og Kangol hattinn og gíra sig Miðaverð: 6.990 í forsölu // 7.990 við hurð Húsið opnar 20:00 Tónleikar hefjast: 21:00 20 ára aldurstakmark

Se på Austurbæjarbíós webbplats →

Datum

Lördag 21 Nov

Tid

21:00

Pris

6.990 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík