Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Mozart Requiem - Óperukórinn í Reykjavík
Klassiskt

Mozart Requiem - Óperukórinn í Reykjavík

Óperukórinn í Reykjavík býður til stórtónleika í Eldborg þar sem flutt verður eitt áhrifamesta og stórbrotnasta meistaraverk tónlistarsögunnar – Sálumessa Mozarts, Requiem. Requiem Mozarts er einstakt tónverk sem sameinar dramatískan kraft, djúpa tilfinningu og óviðjafnanlega fegurð. Tónlistin sveiflast á milli ógnar og vonar, myrkurs og ljóss og hefur snert hjörtu tónlistarunnenda í meira en tvær aldir. Mozart samdi verkið á síðustu mánuðum ævi sinnar, en lést árið 1791 áður en hann náði að ljúka því. Síðan hefur það skipað sérstakan sess meðal áhrifamestu verka klassískrar tónlistar. Með Óperukórnum í Reykjavík koma fram fjórir af okkar fremstu einsöngvurum: Þóra Einarsdóttir, sópran Guja Sandholt, mezzósópran Elmar Gilbertsson, tenór Bjarni Thor Kristinsson, bassi Stjórnandi: Aron Axel Cortes Það er einstakt tækifæri til að upplifa þetta tímalausa meistaraverk í glæsilegri umgjörð Eldborgar í Hörpu. Verið velkomin á tónlistarviðburð sem snertir hjartað og situr lengi í minningunni.

Se på Harpas webbplats →

Datum

Söndag 24 Jan

Tid

17:00

Venue

Harpa

Pris

4.990 - 13.990 kr

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík