
Moulin Rouge! Söngleikurinn — Stóra svið
Moulin Rouge! Söngleikurinn Salur: Stóra svið Söngleikurinn Moulin Rouge! gerist í París 1899 þar sem söngvaskáldið Christian kemur til borgarinnar í leit að innblæstri. Honum er tekið opnum örmum af bóhemum Montmartre sem vinna að söngleik sem þá dreymir um að verði settur upp í næturklúbbnum Moulin Rouge – Rauðu Myllunni. Christian slæst í lið með þeim en verður ástfanginn af stjörnu Myllunnar – hinni óviðjafnanlegu Satine, sem heillast af skáldinu unga. En gildi bóhemanna um frelsi, fegurð, sannleik og ást mega sín lítils í heimi þar sem peningar ráða og allt er falt. Klúbburinn er í fjárhagsvandræðum og eigandinn Harold Zidler sér engan annan kost en að leita til hins forríka og harðsnúna greifa af Monroth, jafnvel þó það kosti að Satine sjálf verði hluti af kaupunum. Leikstjóri íslensku uppfærslunnar er Brynhildur Guðjónsdóttir. Tónlistarstjóri er Jón Ólafsson og þýðing er í höndum Braga Valdimars Skúlasonar. Uppsetning Borgarleikhússins á Moulin Rouge! söngleiknum verður stórbrotin upplifun fyrir augu, eyru og hjarta. Öllu verður til tjaldað hvað varðar leik- og hljóðmynd og besta sviðslistafólk landsins fengið til að flytja okkur inn í grípandi heim Rauðu Myllunnar í París 1899 í sýningu sem á sér enga líka í íslensku leikhúsi! Um Moulin Rouge! Söngleikinn Handrit: John Logan Tónlist: Ýmsir listamenn Útsetning tónlistar: Justin Levine Aðstoð við útsetningu: Katie Kresek / Charlie Rosen / Matt Stine Dans útsetning: Justin Levine / Matt Stine Listrænir stjórnendur: Nordiska Production Sviðssetning: Anders Albien Leikmynd: takis Búningahönnun Astrid Lynge Ottosen Danshöfundar: Anja Gaardbo / Jenny Widegren / Xain Odenstål / Kirsty McDonald Listrænir stjórnendur: - Borgarleikhúsið Leikstjóri: Brynhildur Guðjónsdóttir Aðstoðarleikstjóri: Melkorka Gunborg Briansdóttir Þýðing: Bragi Valdimar Skúlason Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson Danshöfundur: Kirsty McDonald Sýningarstjóri: Halla Káradóttir Leikgervi: Astrid Lynge Ottosen / Andrea Ruth Andrésdóttir Hljóðhönnun: Jón Örn Eiríksson / Þorbjörn Steingrímsson Hljóðblöndun: Þórhallur Arnar Vilbergsson