
Fáir hafa haft jafn mikil áhrif á sviði kvikmyndatónlistar og ítalska tónskáldið Ennio Morricone. Hann samdi tónlist við meira en 400 kvikmyndir og sjónvarpsþætti og er af mörgum talinn eitt merkasta kvikmyndatónskáld allra tíma. Mikill hluti tónlistar hans fyrir kvikmyndir lifir enn góðu lífi utan kvikmyndatjaldsins en galdurinn margfaldast þegar tónlist og mynd koma saman. Morricone var gríðarlega fjölhæfur, gat auðveldlega tekist á við ólíkar tegundir tónlistar og margar þekktustu laglínur hans hafa enn djúpstæð áhrif á áhorfandann. Á þessum kvikmyndatónleikum leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands tónlist úr mörgum af þekktustu kvikmyndunum sem meistari Morricone vann að. Þar á meðal eru Once