
Það er ekki á hverjum degi að ráðist er í flutning á þrekvirki J. S. Bachs, Mattheusarpassíunni, en árið 2027 verða 300 ár liðin frá frumflutningi hennar. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur nú þetta stórvirki tónlistarsögunnar ásamt fjölda einsöngvara og kóra undir stjórn Benedikts Kristjánssonar. Benedikt er okkar fremsti túlkandi á söngtónlist Bachs og eftirsóttur sem slíkur um gervalla Evrópu. Hér leiðir hann hljómsveitina auk þess að syngja hlutverk guðspjallamannsins. Með Benedikt koma fram margir af okkar fremstu söngvurum ásamt einvalaliði erlendra einsöngvara. Þrír kórar taka þátt í flutningi þessa mikilfenglega verks, sem tekur um þrjár klukkustundir í flutningi. Þetta eru tónleikar