
KlassisktJazz
Kvartett Sigurðar Flosasonar - Múlinn Jazzklúbbur
Sigurður Flosason, saxófónn Anna Gréta Sigurðardóttir, píanó Birgir Steinn Theódórsson, bassi Einar Scheving, trommur Kvartett saxófónleikarans þaulreynda Sigurðar Flosasonar flytur glænýja og nýlega tónlist eftir Sigurð. Tónlistin er nútímalegur jazz sem byggir á grunni bebop stílsins en teygir sig í ýmsar áttir. Grípandi laglínur svífa yfir flóknara umhverfi hljóma og hryns. Auk Sigurðar skipa hljómsveitina þau Anna Gréta Sigurðardóttir á píanó, Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur.