
Klassiskt
Kurtág - Bartók - Bach : Sígildir sunnudagar
Sif Margrét Tulinius fiðluleikari og píanóleikarinn Peter Máté flytja verk eftir György Kurtág, Béla Bartók og Johann Sebastian Bach í spennandi efnisskrá einleiksverka og samleiksverka. Tónlist ungversku tónskáldanna Bartóks og Kurtágs sprettur úr ríkri miðevrópskri tónlistarhefð þar sem þjóðlagaarfur og nákvæmni í tónmáli koma saman en jafnframt var tónlist Bachs þeim báðum afar mikilvægur innblástur. Efnisskráin býður þannig upp á samtal milli einleiks og samleiks, hefðar, þjóðlagaarfs og nýsköpunar. Efnisskrá György Kurtág (1926- ) Signs, Games and Messages - frumflutningur á Íslandi Jele, játékok és üzenetek fyrir einleiksfiðlu ° Hommage à J.S.B. ° Postcard to Anna Keller Anziksz K