Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Komdu um Jólin 2026
RockTeater

Komdu um Jólin 2026

KOMDU UM JÓLIN Laugardaginn 5. desember 2026 Eldborg, Harpa Sýningar kl. 17:00 og 21:00 Miðasala hefst fimmtudaginn 17. september kl. 10:00. Komdu um jólin í Eldborg – glæsilegt jóla- og partýkvöld þar sem nokkrar af þekktustu röddum landsins koma saman og flytja jólalögin sem við þekkjum og elskum, ásamt stórum lögum sem koma okkur í rétta hátíðarskapið. Á svið stíga: Birgitta Haukdal Stefán Hilmarsson Ragga Gísla Klara Elías Klara Einars Magni Gunnar Óla Vignir Snær Með þeim verður einvala lið tónlistarfólks og öllu verður tjaldað til í Eldborg – stór hljómur, ljós, gleði og glæsileg umgjörð. Komdu um jólin er hugsað sem meira en hefðbundnir jólatónleikar. Hér mætast jólin og áramótastemningin í einni stórri hátíðarveislu; klassísk jólalög, óvæntar útgáfur, dúettar og lög sem einfaldlega kalla á að maður klæði sig aðeins upp, mæti með góðu fólki og geri sér kvöld úr þessu. Tvær sýningar verða í Eldborg laugardaginn 5. desember: Fyrri sýning – kl. 17:00 Tilvalin fyrir þá sem vilja hefja desemberkvöldið með glæsilegri jólastund í Hörpu. Seinni sýning – kl. 21:00 Jólin mæta laugardagskvöldinu – meiri kvöld- og partýstemning og tilvalið að gera heila kvöldstund úr heimsókninni í Hörpu.

Se på Harpas webbplats →

Datum

Lördag 5 Dec

Tid

21:00

Venue

Harpa

Pris

6.900–18.900 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík