
Flytjendur: Stefán Ragnar Höskuldsson, flauta Katie Buckley, harpa Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla Hulda Jónsdóttir, fiðla Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla Steiney Sigurðardóttir, selló Það er mikið tilhlökkunarefni að Stefán Ragnar Höskuldsson, 1. flautuleikari Berlínarfílharmóníunnar komi fram í fyrsta sinn á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins. Efnisskráin byggist á verkum fyrir flautu og hörpu, vinsæl dúósamsetning sem fjöldi tónskálda hefur samið fyrir síðan á 18. öld. Claude Debussy var þó einna fyrstur til að bæta víólu við dúóið árið 1915 og mynda þar með tríó, og fylgdu fjölmörg önnur tónskáld í fótspor hans á 20. öld. Á fyrri hluta tónleikanna verða leikin tvö slík tríó: Sónata fyrir flau