
Flytjendur: Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla Sigurgeir Agnarsson, selló Xun Yang, bassi Domenico Codispoti, píanó Kammermúsíkklúbburinn fagnar nú sjötíu ára afmæli en fyrstu tónleikar klúbbsins fóru fram í Melaskóla þann 7. febrúar 1957. Þá hlýddu á annað hundrað tónleikagestir á Erkihertogatríóið eftir Beethoven í flutningi Björns Ólafssonar, konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Einars Vigfússonar, leiðara sellódeildar SÍ og Árna Kristjánssonar píanóleikara. Eftir hlé bættust við Jón Sen á víólu og Erwin Köppen á bassa og flutti hópurinn Silungakvintettinn eftir Schubert. Líklega óraði fáa tónleikagesti fyrir því að klúbburinn ætti eftir að verða helsti v